Afhendingaleiðir

Þegar kaupandi verslar í vefverslun Kaki fyrir meira en 10.000 kr. er boðið uppá fría heimsendingu

  • Við afhendingu þarf að sýna fram á staðfestingu á kaupum.
  • Pósturinn sækir sendingar í verslunina alla virka daga og reynum við að koma öllum pökkum út samdægurs eða strax næsta virka dag eftir að pöntun hefur verið staðfest.
  • Afhendingartími er að jafnaði 1-3 virkir dagar.
  • Pósturinn sendir þér rafræna tilkynningu (SMS) þegar sendingin er lögð af stað til þín.
  • Á höfuðborgarsvæðinu eru pakkar keyrðir út til einstaklinga alla virka daga milli 17-22.
  • Annars staðar á landinu þar sem heimkeysla er í boði er mismunandi hvaða tímasetningar eiga við. 
  • Takist ekki að afhenda sendinguna í heimkeyrslu er hægt að nálgast hana á næsta pósthúsi. 
  • Mögulegt er að fá vörur sendar á annað heimilisfang en kaupandans. Um afhendingu vörunnar gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins.  
  • Aðeins er hægt að fá vörur sendar innanlands.
  • Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða endurgreiðsla.

Ef vörur hafa ekki borist kaupanda innan gefins tímaramma er viðskiptavinum bent á að hafa samband við netverslun Kaki í gegnum netfangið steinunn69@gmail.com

Sendingargjald:

  • Ef verslað fyrir meira en 10.000 kr. er sendingin gjaldfrjáls
  • Sendingargjald bætist við eftir að sendingarmöguleiki er valinn
  • Sendingarmöguleikar og verð þeirra miðast við Póstnúmer, við bjóðum upp á
  • Pósturinn - Heimsending
  • Pósturinn - Landpóstur
  • Pósturinn - Póstbox
  • Pósturinn - Pakkaport
  • Pósturinn - Pósthús